pukz

pukz

27.11.2006 00:57:40 / pökkurinn

Trend-færsla..

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Until next time, pís


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 14:15:37 / pökkurinn

.próflausi?

Jeeess, mættur aftur, pirraðari en nokkru sinni fyrr held ég bara. Þannig er mál með vexti að ég var tekinn AFTUR fyrir of hraðann akstur á laugardaginn seinasta, löggann á skaganum tók mig þarna hjá ljósunum og mældi mig víst á 93 :( Sem þýðir það að ég fæ 3 punkta fyrir það og ég var með 6 fyrir og þar sem ég er bara með 2. ára skírteini þá má ég bara fá 7 punkta en eins og þeir sem kunna að reikna sjá, þá eru þetta allt í allt 9. Ég var með 3 þegar ég fékk prófið aftur, allt fyrir að hafa ekki verið í belti! Hversu glatað er það samt?!? Ég er stoppaður fyrir að vera ekki í bílbelti og sektaður og fæ punkt og ég veit ekki hvað og hvað, svo veit ég alveg um nokkur dæmi þar sem að fólk sleppur. Á það sama ekki að ganga yfir alla? Mér finndist það réttast allavegana, það er greinilega ekki sama hver það er. Er líka alveg viss um það að ef ég ætti ekki svona drulluflottann bíl þá myndi löggann bara láta mig fá "aðvörun", þetta er klárlega ekkert annað en öfundsýki! ;) En já, ég var með 3 punkta fyrir að vera ekki í belti hérna í denn, svo fékk ég 3 punkta og 30k í sekt sem btw vaaaar að detta hérna inn um lúguna fyrir hraðaksturinn sem ég fékk þegar ég var að skutla Eydísi á flugvöllinn og svo fæ ég 3 fyrir hraðaksturinn á laugardaginn og líklega 30k aftur í sekt og missi svo prófið ofan á allt saman, frábært! :lol: Ég á samt eftir að skoða það, er það ekki þannig að ef maður missir bílprófið þá fyrnast punktarnir? Ég meina, þegar ég er búinn að vera próflaus núna þá fæ ég ekkert skírteinið og er með 6 punkta á því er það? Þetta á auðvitað að núllast niður og ef það er þannig þá er ég ekki að fara að missa prófið held ég, ég ætla að skoða þetta á eftir.

En já, tónlistarkeppninn og ball á föstudaginn, býst alveg fastlega við því að það verði tekið með trompi! Malló, Robbi, Maggi G og Gummi sterki eins og hann vill láta kalla sig eru að fara að bösta nokkrar feitar á keppninni og auðvitað verður maður að mæta og specca það! Lætur ekki svona stöff framhjá sér fara, svo voru þessir vitleysingar að biðja mig um að vera "fyllirafturinn" þeirra, er það samt ég? Er ég eitthver fylliraftur? Mér persónulega finnst það ekki, það eru margir sem eru muuuun verri en ég í þessum bransa.

Allavegana, Ronni kominn heim og kominn í frí, hann er kominn í sama farið og hann fer alltaf í þegar hann kemur heim, sem er að krúsa á daginn, krúsa meira á kvöldinn, fá sér svo bjór og sofa svo út! Djöfull myndi ég meika það!

puki.próflausi? :$

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 21:47:37 / pökkurinn

Sveittur tölvunörd?!?

Jó, langt síðan ég hef skrifað færslu.. sjitt alveg 5 mánuðir en samt eru svona 10 - 15 manns sem kíkja á bloggið mitt á hverjum degi, ég spyr nú bara til hvers í andskotanum? Er fólk að vonast til þess að ég bloggi? Ætla nú að fara að setja þessa síðu í stand, fara að verða virkur og sýna elítu gaurunum hvernig maður heldur uppi eðalbloggi! Þó að þeir séu 3 þá ætla ég að owna þá!

Allavegana, ég er hérna á lan-i hjá Salza d0g, er búinn að vera hérna í rúma viku. Þetta lan byrjaði alveg vel, vorum að chilla bara í cs og á laugardagskvöldið þá ákvaðum við strákarnir að fá okkur aðeins í aðra, ég reddaði strákunum náttúrulega í ríkið 8) Og já, btw.. ég varð tvítugur á seinasta miðvikudag.. er samt ekki búinn að fá neina afmælisgjöf :( Ég fæ reyndar afmælisgjöf frá Eydísi á laugardaginn. Allavegana ég reddaði strákunum í ríkið, við fengum okkur svo í glas í skúrnum hjá Salza og svo þegar menn voru orðnir þéttir þá kíktum við yfir til Sela nice, var alveg ljómandi partý hjá honum, Bjarki fór á kostum.. var á nærlunum meira og minna allt kvöldið.. hE! Allt í lagi með það, svo áður en ég veit af þá logaði bara allt í slagsmálum.. helst að flest allir á skaganum viti af því þannig að ég nenni ekkert að telja það upp hverjir voru slást.Getið lesið aðeins meira um þetta á elítunni, en kallarnir eru í tenglum. Þessi slagsmál afrekuðu það allavegana að komast í fréttablaðið svo að ég er sáttur með þetta, við hlógum nú samt allir að þessu daginn eftir og það er enginn sár út í neinn.

En úr einu í annað, ég er búinn að kaupa mér bíl.. Opel Astra OPC, læt fylgja með myndir á eftir sem að Marino sansaði í photoshop, props fyrir það ;) Svo fucking viku eftir að ég fæ bílinn þá var bakkað á mig og afturstuðarinn eyðilagðist! Var að fá hann úr viðgerð í gær þannig að Type-R og fleiri spaðar mega fara að vara sig á rúntinu.. annars verða þeir smókaðir!

Svo er Eydís mín í útlöndum, er búin að vera síðan á laugardaginn seinasta og svo kemur hún á laugardaginn næsta, eins og ég kom inn á áðan.. hlakka ýkt mikið til :* Og já, sem minnir mig á það, ég var tekinn fyrir of hraðann akstur þegar ég var að skutla út á flugvöll.. var tekinn á 117, sem er 47 yfir hámarkshraða útaf hámarkshraðinn er 70 þar :evil: Fuck the five-o! :klikk:

En ég held að þetta sé komið gott, ég hendi inn færslu við næsta tækifæri, pís

pukz.opc!






Smá innskot, þeir sem eru ekki í tenglum en vilja vera þar, commentið og ef þið eruð hætt að blogga en lesið bloggið mitt þá látiði mig vita ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 11:28:57 / pökkurinn

Þetta verður bara að bíða betri tíma!

Jájá, gelgju færslan sem átti að vera næst verður bara að bíða betri tíma.. ég hef einfaldlega ekki tíma í þetta.. held að það taki nefnilega alveg góða stund að gera svoleiðis færslu. Ég er samt alveg búinn að sjá út hvernig hún á að lýta út.. ;) Kem með smá sýnishorn í færslunni! :lol:

En úr einu í annað, ég var að koma af prófsýningunni.. gekk alveg þokkalega í þessum prófum, get allavegana ekki kvartað.. eða jú, ég get kvartað yfir stærðfræðinni. Fékk skitna 2 þar 8| En allt annað var ekkert til að kvarta yfir..ein 10 meira að segja ;) Svo voru náttúrulega 9, 8, þrjár 7 og svo tvær 6.. og svo rak stærðfræðin restina, eins og ég kom inn á áðan.. með 2 :D Er samt nokkuð sama um þessa stærðfræði útaf ég þarf hana ekkert til að útskrifast sem rafvirki.

En svo fer ég að byrja að vinna, verð upp í álveri í sumar á c-vaktinni, alveg hreint ljómandi.. byrja á morgun. Annars lítið sem ekkert að frétta af mér, ég bíð bara spenntur eftir helginni eða réttara sagt laugardeginum.. byrja hann rétt eftir hádegi í pottinum hérna heima og svo verður kíkt á mörkinna og fengið sér 1 – 2 og svo er það ÍA – KR og svo eftir leik er grill og eitthvað smá tjill hjá Stefáni.. þar sem að strákurinn er að útskrifast :D Svo er Evróvisjón um kvöldið og eitthvað áfengt með því ;)


En ég lofa að koma með gelgjufærsluna á mánudag eða þriðjudag, það fer allt eftir því hvenar ég vakna á mánudeginum.. er nefnilega að fara á næturvakt um kvöldið.. en eins og ég segi, ef hún kemur ekki á mánudag.. þá kemur hún á þriðjudag, ætla svo að klára þetta með smá teaser af gelgju færslunni og gullkorni frá henni Eydísi :D


Ég og Eydís vorum á leiðinni suður á þriðjudaginn og það var sól, svo Eydís setur upp sólgleraugun.. svo komum við að göngunum og erum komin aðeins áleiðis í göngunum, þá spyr Eydís "af hverju er svona dimmt hérna inni?" Og ég svara "Það er af því að þú ert með sólgleraugun Eydís" Jájá, þá gleymdi hún bara að taka þau af sér og fattaði ekki neitt af hverju það var svona dimmt.. :lol:

 

 


pukz!


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 15:31:04 / pökkurinn

Cause I´m loosing my mind

Sjitt, seinasta færsla hjá mér var svo leiðinleg.. ætla samt að halda áfram í þessum pakka, útaf það breytir engu máli þó ég vandi mig eitthvað geðveikt að gera færslu.. það kommentar bara enginn.. eða jú Eydís, af því að ég segi henni að gera það :lol:

En ég hef tekið eftir því að það er fullt af fólki sem ég er í tenglum hjá sem eru ekkert í tenglum hjá mér.. finnst það heví leiðinlegt, svo að ég ætla að biðja það fólk sem er með mig í tenglum að kommenta á þetta og þá plögga ég ykkur í tengla.. ætla einmitt að bæta í tenglana núna áður en ég hætti í tölvunni, setja svona þá sem ég man eftir að ég er í tenglum hjá inn :)

En slaufan er á föstudaginn.. var ég kannski búinn að tala um hana? Allavegana, held að maður verði edrú þar.. ætla svo að taka hressilega á því á laugardeginum.. Jón Valur að koma heim og svo er held ég eitthvað olís djamm og ég veit ekki hvað og hvað :haha:

Svo hef ég verið að pæla í einu.. sá á b2.is um daginn að það var eitthver gaur að gorta sig af því að eiga "íslandsmetið" í bloggi.. hann bloggaði held ég 100 færslur á einum degi og þær voru allar meira en 1 lína eða eitthvað álíka.. hef mikið verið að pæla í að slá þetta met og gera eins og svona 110 færslur eitthvern daginn, er það ekki alveg heví? Ég held að það myndi alveg slá í gegn! 8)

Þetta er komið gott í dag, drullunett færsla bara.. miðað við að ég gerði hana á 3 mín eða eitthvað!

Lag dagsins: Papa Roach - Last Resort

pukz! ;)

p.s. næsta færsla verður gelgju færsla! Stau tuned! :lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 15:32:56 / pökkurinn

Ekki sá duglegasti

Jáá, ég er ekkert búinn að vera sá duglegasti í þessu bloggi.. en það er ekkert gaman að lesa eitthvað nýtt á hverjum degi, það verða að líða nokkrir dagar á milli færsla, annars verða þær bara leiðinlegar.

 

 


En slaufan er á föstudaginn, vonast til að sjá sem flesta.. ég er allavegana búinn að skrá mig, og ef þetta verður eitthvað sucky þá fer maður bara snemma heim og hvílir sig fyrir átök laugardagsins, en þá verður einmitt staffadjamm í Olís, óvissuferð svokölluð.. grunar samt sterklega að við förum í gokart og eitthvað.. ég vona það allavegana :)

 

 


En ég er að fara að týna kjúkling.. það er aldrei friður í þessu helvíti.. eins og Aron sagði í gær, ég er workaholic :S Ég er bara alltaf að vinna, ég hef ekki einu sinni tíma til að fara í gymmið eða gera eitt né neitt.. ætlum samt að reyna að drulla okkur í smá basket í kvöld, reyna að nýta þetta awesome veður sem er úti.. en ég er að fara að vinna núna, týna kjúkling réttara sagt, until next time.. pís

 

 

Lag dagsins: Korn – Got The Life

 

 


pukz!


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 22:08:14 / pökkurinn

Feeeit færsla!

Ætla bara að byrja á því að láta ykkur vita af því að þetta verður alveg heeeví nett færsla! Mæli eindregið með því að þið lesið hana.. ;)


 

En allavegana, skólinn er sama sem búinn, bara 3 próf eftir.. sem er nice. Fer einmitt í fyrsta á morgun, stæ262.. held að ég láti lærdóminn mæta afgangi og gefi skít í þetta, ég þarf ekkert þennan áfanga til að klára rafvirkjun. Þarf bara 4 einingar í stærðfræði til að klára rafvirkjun og svo þarf eitthverjar einingar í dönsku, íslensku og þessu dóti.. og ég er búinn með það allt þannig ég er lítið sem ekkert að stressa mig á því 8)

 

 


Svo er Skúli Motta :lol: kominn heim, gott að fá strákinn heim, þá hefur maður eitthvern til að tjilla með svona á meðan maður hefur ekkert að gera.. það er að segja ef ég er ekki með henni Eydísi.. :*


Við strákarnir skelltum okkur svo á ball á föstudaginn, lokaballið var hjá NFFA var þá.. helvíti gaman að því, var alveg heví góð mæting og ég held að það hafi bara flest allir verið ánægðir með þetta ball.. er samt ekki alltaf hægt að hafa alla ángægða.. það eru alltaf eitthverjir sem fannst ekki gaman og blablabla..


 

 

En allavegana, við strákarnir tjilluðum aðeins hérna hjá mér og kíktum svo á Högna.. sátum þar í mestu makindum og sötruðum, mismikið samt, er þá aðallega að tala um Högna, hann var aðeins rólegri á því heldur en ég og Aron, vorum farnir að úða í okkur vodka eins og finni! :lol: Svo fengum við Arnór til að skulla okkur til Möggu Elfu þar sem hún og Unnur voru að tjilla.. kíktum þangað og drukkum aðeins meira og vorum komnir helvíti vel í glas.. fékk meira að segja blackout.. þar sem ég vaknaði bara morguninn eftir með eyrnalokk.. svona blingbling og ég man bara EKKERT eftir að hafa sett hann í mig en anyway, svo skutlaði Siggi frændi minn okkur á ballið og allt í góðu, kom svo inná ballið og var bara í góðu, svo er ég uppi í góðu.. tek svo eftir því að það eru eitthverjir gaurar úr 10. bekk þarna inni.. sem mér persónulega finnst alveg glatað, þetta fólk veit alveg að það á ekki að vera þarna inni. Held að þeim fyndist glatað ef ég færi að klína mér á grunnskólaböll.. sjáiði það samt ekki fyrir ykkur? Ég á grunnskólaballi.. :lol: En allavegana, þeir “fóru” út með tilheyrandi rugli.. held svo bara áfram að skemmta mér.. svo um 1 leytið þá fór ég bara, fékk Sigga frænda til að skutla mér aftur, fór í sjoppuna og svo smá rúnt með honum.. náðum svo í Eydísi og bara heima að sofa :D

 


Svo á sunnudaginn var stuðningsmannaklúbburinn Skagamörkin settur, djöfull lýst mér vel á þetta, held að þetta verði alveg heví skemmtilegir leikir í sumar.. gott veður, aðeins öl fyrir leik og svo að skella sér á leik og gera allt vitlaust.. hljómar allavegana eins og gott plan!

 

 


Held að ég fari að slútta þessu, þetta er alveg komið nóg í bili.. enda þetta á skemmtilegri myndasögu og lagi dagsins!

 

 

Lag dagsins: B tch <- skoðið þetta á radioblogclub, geðveikt lag!

 

 

 

 

 



 


pukz! 


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 17:54:41 / pökkurinn

Þeir sem reykja í peningum kveikja!

Howdy..

Er byrjaður að vinna í svona tenglum, sem er skemmtilegt að skoða hérna á síðunni.. svo ég bæti aðeins heimsóknafjöldan hérna á síðunni.. er að skríða svona rétt yfir 10.000 og sem minnir mig á það! Hver var númer 10.000? Það er alveg merkur áfangi að vera númer 10.000 á svona bloggi.. spilar nú líka með að þetta er blogg hjá einum af gaurunum sem eru allsráðandi í félagslífi FVA ;)

En allavegana, það er ball á föstudaginn, lokaball.. og mun hljómsveitin í Svörtum Fötum spila fyrir dansi á neðri hæðinni og DJ Hermigervill verður á efri! Nú.. þetta segir sig nokkurn veginn sjálft, ballið er á breiðinni og byrjar.. þið vitið þetta allt. Getið samt séð verð og svona á auglýsingu á www.nffa.is

En ég er hættur að reykja.. búinn að vera hættur í dag.. er sem sagt ekki búinn að reykja síðan um þetta leyti í gær.. reykti eina eftir hádegismat og svo eina um þetta leyti í gær og svo ekki söguna meir.. :haha: Er reyndar farinn að taka aðeins í neðri vörina í staðinn.. en það er bara svona til að svala mestu nikotín þörfinni.. ætla mér svo að hætta því :) Það eru líka alveg ástæður fyrir því að ég sé að hætta.. ég er ekki að hætta af því ég er blankur eða eitthvað álíka, það er bara í ættinni minni kransæðastífla og ekki vil ég deyja fyrir þrítugt 8| Svo ætla ég mér líka að komast í form og reyna að fara að boxa eitthvað.. er búinn að þyngjast um rúm 4kg síðan ég kom heim frá Tenerife :whut:

En þá held ég að ég slútti þessu, ætla að láta fylgja mynd með og lag dagins

Lag dagsins: Gnarls Barkley - Crazy


Ég á Tenerife fyrir rúmum 4kg :|

pukz!



» 6 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 15:40:46 / pökkurinn

Roni Size hvað?

Jó! Ætlaði nú bara að henda í almennilega færslu núna, þessar færslur sem ég hef verið að gera undanfarið eru búnar að vera hálfslappar. Var aðallega bara að blogga bara til að blogga.. held ég geti ekkert lýst því neitt betur en það. En allavegana, ég fór í bæinn þarna á miðvikudagskvöldið, ég og Jón Valur fengum Arnór og Ragga til að skutla okkur fyrir smá $$$, props fyrir það Arnór ;) Allt í lagi, við komum í bæinn og skellum okkur á Nasa, vorum komnir þangað um 2 leytið og héldum að Roni væri löngu byrjaður að spila, ætluðum bara aðeins að kíkja á þetta og hafa gaman.. en nei nei, þegar við komum um 2. þá er kvikindið ekki ennþá byrjað að spila :S Þannig við tjillum bara þarna, hitti Stefán Jónsson stórmeistara og hann var alveg eiturhress að vanda. En svo fyrst að Roni var ekki byrjaður að spila þá ákveð ég að kíkja aðeins á efri hæðina.. ætlaði að fá mér einn öl og bíð á barnum í alveg slatta tíma, svo þegar ég er næstur þá bið ég um einn bjór.. allt í lagi, dreg upp þennan eina 500 kall sem ég var með.. og þá segir gaurinn bara "bjórinn kostar 600".. þannig ég átti bara ekki efni á einu bjór.. eða ég hélt það allavegana, komst svo að því síðar að ég var með 700kr á mér. Þannig ég beilaði bara á bjórnum og fór aftur niður.. og klukkan var farinn að ganga 3, var eitthvað 20 mín í og helvítið hann Roni var ekki ennþá byrjaður að spila! 8|

Þannig ég bara nennti þessu ekki lengur og fór út, ég sem sagt borgaði 1800 kall fyrir það að labba inná Nasa, hitta Stefán Jónsson, fara á efri hæðina og eiga ekki pening fyrir bjór og labba svo út! Sé alveg helvíti mikið eftir þessum 1800 kalli, vegna þess að ég hefði getað pantað mér pizzu og það hefði verið meiri skemmtun! :haha:

En ég held ég sé ekkert að fara að vinna Eydísi og Rakel í þessari blogg keppni.. þar sem að það eru heiðursmenn sem skoða mitt blogg en bara eitthverjir teens sem skoða þeirra og þar sem það eru muuuun færri heiðursmenn á þessu landi okkar heldur en teens, þá gefst ég upp! Eydís.. þú vinnur! :evil: En ég ætla samt alveg ennþá að halda áfram að blogga, ég hætti ekkert núna fyrst ég er byrjaður á þessu. Er svo svona að pæla í því hvort ég eigi að halda áfram með eitthvern svona svipaðan fídus og bílahornið var.. þar sem ég er kominn á fullt í þessu júniti, vil fá álit manna á það og jafnvel eitthverjar uppástungur um hvað ég geti gert, skoða allt..

Var núna að koma frá Jón Val, er búinn að vera að reyna að hjálpa honum eitthvað í bílnum, en þar sem ég er ekkert sérlega lunkinn við það að gera við bíla þá gat ég ekki hjálpað honum mikið.. en samt eitthvað.. :haha: En svo vorum við að lenda í tómu basli, helvítis bíllinn startaði bara ekki, það var alveg í lagi með geymirinn.. eða við höldum það en samt startaði bíllinn ekki, vorum eitthvað að pæla í því hvort þetta væri alternatorinn en Jón Valur var alveg pottþéttur á að þetta væri ekki hann.. svo var hann að fara í bæinn á boxkeppnina þannig við hættum bara snemma í dag..

En ég nenni ekkert að skrifa meira, er búinn að vera að draga þetta alveg óendanlega mikið á langinn.. held að það eigi enginn eftir að nenna að lesa þessa færslu.. endum þetta í dag á föstum lið eins og venjulega.. lag dagsins!

J. J. Cale - Cocaine

pukz 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 18:43:36 / pökkurinn

Roni Size

Titilinn segir nú meira en mörg orð.. það er enginn annar en Roni Size sem er að fara að spila á Nasa í kvöld, maður er svona að pæla í því hvort maður ætti að skella sér? Þetta er alveg 50/50 dæmi sko, mig langar rosalega en það er ekki alveg komið á hreint þá hver keyrir og hvort við förum ;) Þetta allavegana heillar rosalega..

Svo er annað, ég var að vinna útaf Valdi kallinn er veikur og strákurinn á að vera að vinna í fyrramálið, þannig það er spurning, ef Valdi verður ennþá veikur þá þarf ég líklega að vinna og þá nenni ég ekkert að fara á Roni Size og mæta svo í vinnu 3 klst eftir að ég kem heim eða eitthvað.. :$

En Eydís er kominn að ná í mig, er að fara í matarboð hjá tengdó.. svo þangað til næst, pís.. og já lag dagsins er

Bob Dylan - Stuck in the middle with you

pukz

P.s ég vil fá komment á kvikindið! :P

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 23:16:28 / pökkurinn

Slevin

Jájá var að koma úr bíó, fórum saman stjórnin ;) Skelltum okkur á Lucky number Slevin og þetta er eitthver besta mynd sem ég hef séð lengi! Mæli alveg eindregið með henni, ef þið fýluðuð fight club þá held ég að þið elskið þessa, var svona í líkingu við fight club.. maður fattaði myndina ekkert almennilega fyrr en í endann.

Svo fór ég líka á ball í gær, entist samt stutt þar.. fannst þetta leiðinlegt ball og ég var ekkert með pening á mér til að kaupa mér á barnum og verða ölvaðari.. ef ég hefði getað gert það þá hefði mér ábyggilega fundist skemmtilegra. En það kemur ball eftir þetta ball, þannig ég bíð bara rólegur. Sem minnir mig á það, það fer að styttast í lokaballið hjá FVA, er búið að ákveða hljómsveit og alles.. það kemur bara í ljós seinna. En ég get alveg lofað ykkur því að þetta verður tudda ball! ;)

Svo verðiði að vera geðveikt dugleg að auglýsa bloggið mitt og svona, kíkja nokkrum sinnum á dag útaf það er alltaf eitthvað nýtt, ég ætla mér að vinna þessar stelpur í þessari keppni! :klikk:

En ætla að láta þetta nægja í bili, enda þetta bara á lagi dagsins sem að þessu sinni er..

Rolling Stones - Under my thumb

pukz

P.s: það eru bara 110 dagar í bílprófið mitt 8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 14:41:36 / pökkurinn

Allt á fullt!

Jæja, nú er ég hættur þessari leti, ætla drulla mér til að setja þetta blogg alveg á fullt.. fyrst ég get gefið mér hálftíma á dag til að skoða live2cruize þá hlýt ég að geta hent í eina færsluá hverjum degi, eða ég ætla allavegana að reyna það. Svo var líka Eydís að monta sig af því að vera með fleiri heimsóknir en ég og mér finnst það pirrandi, ég er mikill keppnismaður og ég læt ekki eitthverja stelpuvitleysinga vinna mig í svona blogg keppni! ;)

Ætla svo að fara að koma með svona fídusa inn á bloggið, svona það heitasta í dag, ef þið fattið hvað ég á við? :haha:

En þetta er komið gott í dag, og verið svo aktív að kommenta og skrifa í gestabók og þess háttar 8)

Lag dagsins: Skee Lo - I wish <--- tjékkið á þessu á http://radioblogclub.com

pukz

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 19:04:37 / pökkurinn

You know I got what it takes to make the club go out of control!

Alveg frægur.. 50 cent sko.. en titillinn er einmitt úr lagi með stráknum, splæsi öli á þann sem getur sagt mér hvaða lag þetta er :lol: Er samt ekkert að tala um öl í fleirtölu, bara einn bjór og það mega ekki stelpur taka þátt í þessu!

En það er eitt sem ég átta mig ekki alveg á.. það er það, af hverju Maren Lind er að reka á eftir mér að gera færslu? Hvenar var síðasta færsla hjá henni?!? Veit ekki betur heldur en það sé kominn meira en hálfur mánuður síðan hún bloggaði seinast.. svo Maren.. aðeins að hugsa áður en þú talar :lol:

En allavegana, árshátíðin er búin, gekk alveg mjög vel, maturinn var frábær og öll skemmtiatriðin mjög góð, vil þakka Stebba, Unu og Svövu fyrir gott starf, svo var ballið alveg awesome, eitt af betri böllum sem ég hef farið á, var ekkert vesen og enginn leiðindi.. eða ekki svo ég viti allavegana. Páll Óskar klikkar ekki og ég held að það geti enginn kvartað yfir stráknum.

Ætla að fara í það að sansa bílahornið betur þegar ég er búinn með þess færslu og ég vil fá komment á hvaða bíl ég á taka þarnæst, útaf ég er búinn að ákveða hvaða bíl ég tek næst.. en það verður Subaru Impreza STi 8)

Svo er ball eftir rúmar 2 vikur.. svo fólk getur ekki sagt að það sé lítið að gera í félagslífinu.. hef nefnilega verið að heyra að við séum bara eins og stjórnin sem var á undan. Það sé aldrei neitt að gera og eitthvað, sem mér persónulega finnst vera algjört kjaftæði.. en allavegana, það verður ball 24. mars og ef fólkið sem er tauta um að það sé ekkert að gerast mætir ekki þá getur það bara haldið kjafti!

En allavegana, komið gott í dag, þarf að fara að sansa bílahornið, plugga myndum af bílnum hjá Högna svona inná síðuna..

pukz

» 12 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 23:31:26 / pökkurinn

Year festival

Jájá, árshátíðin er alveg mál málanna núna.. en hún er einmitt haldin á morgun. DJ Páll Óskar spilar fyrir dansi og svo verður matur frá Galito og ég veit ekki hvað og hvað.. en svo verða líka eitthver skemmtiatriði, nenni ekki að telja það upp, en þið getið séð allt um það á heimasíðu nemendafélagsins, http://www.nffa.is ;)

Nú, svo hélt ég málfund þarna um daginn, ætlaði að láta Högna tala en hann var víst eitthvað slæmur í hálsinum þannig að hann gat ekki talað :lol: En allt í lagi með það, fundurinn gekk alveg brilliant, var alveg nokkuð stressaður.. þar sem ég hef aldrei talað fyrir framan svona marga en það reddaðist, var reyndar eins og bjáni þegar Arnar oth var að hringja í mig.. ætla klárlega að djöflast eitthvað í honum á morgun.

En svo ætla ég að koma með skemmtilegan fídus hérna inná bloggið mitt, en það verður svona bílahorn, ætla að reyna eftir minni bestu getu að skrifa vikulega um eitthvern bíl og ég vil endilega fá komment á það hvaða bíl ég ætti að taka fyrir næst, held að þetta gæti orðið gríðarlega skemmtilegt ef ég nenni að hafa fyrir því að gera þetta..

En þetta er komið meira en nóg í bili..

Lag færslunar: System of a down - BYOB

pukz

» 10 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 18:00:45 / pökkurinn

Agaleg leti..

Ekki hægt að segja annað en að ég sé búinn að vera agalega latur við það að blogga undanfarið.. hef samt ekki mikinn tíma til að vera að dunda í þessu, því ég er annað hvort að vinna eða í skólanum, geri lítið annað en það.. kemst ekki einu sinni í gymið það er svo mikið að gerahjá mér :S

En já, ætlaði bara að láta dygga lesendur mína vita að þeir séu ekki að standa sig í að skoða bloggið mitt.. það er kominn 21. febrúar og ég rétt svo kominn í 8.000 heimsóknir.. það þurfa alveg helvíti margir að fara að skoða bloggið mitt ef ég á að ná þessu takmarki sem ég setti mér.. sem var að ná 10.000 lesendum fyrir 1. mars, sem er miðvikudagurinn eftir 8 daga. En eins og þeir sem kunna að reikna aðeins þá þýðir þetta að það þurfa að koma svona 250 heimsóknir á dag.. ef ég á að ná 10.000. Og fyrir ykkur sem kunnið ekki að reikna, þá fékk ég þetta þannig út að ég gerði bara 2000 deilt í 8 = 250 skilurru? :lol:

En já, það styttist óðum í bílprófið mitt, rúmir 5 mánuðir.. og maður er farinn að skoða bíla af smá alvöru, er meira að segja búinn að finna bíl sem mig langar alveg geeeðveikt mikið í, þetta er Subaru Impreza STi ´03 módelið.. skilar eitthverjum 265hp :haha:

Ætla líka að gera þarna klukk dæmið.. fyrst að Eydís var svo skemmtileg að klukka mig :lol:

4. Störf sem ég hef unnið um ævina:

  1. Smurstöð Akraness hjá meistara Bigga
  2. Háseti á Sturlaugi
  3. Kerskálanum í NÁ
  4. Bensíntittur í Olís

4. Bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  1. Fast and the furious
  2. Kids
  3. Don´t be a menace
  4. Next friday

4. Staðir sem ég búið á:

  1. Reynigrund 15.. hjá ömmu minni :P
  2. Vallarbraut 17
  3. Jörundarholti 18B
  4. Ekkert meir

4. Sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. The O.C
  2. Lost
  3. X-files
  4. Og Jay Leno bara ;)

4. Síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

  1. www.live2cruize.com
  2. www.b2.is
  3. www.radioblogclub.com
  4. www..mbl.is

4. Staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. New York.. 3 sinnum
  2. Þýskaland
  3. Tenerife
  4. Skorradalur

4. Matarkyns sem ég held uppá:

  1. Pizza
  2. Kjötfass
  3. Buff bollur og spælt egg.. alveg það besta
  4. Skyr.is drykkur með jarðarberjabragði

4. Staðir sem ég vildi heldur vera á núna:

  1. Rúntanti á Imprezuni sem ég ætla að kaupa 8)
  2. Að éta slæsu
  3. Tenerife
  4. N.Y

4. Bloggarar sem ég klukka:

Ætla bara að klukka Benna (Múmíu Flex) af því að hann bað mig um það :*
Myndi alveg klukka eitthvern annan en bara útaf ég og Benni erum ábyggilega þeir einu sem eigum eftir að gera þetta þá læt ég það duga að klukka hann bara :$

En ég ætla að segja þetta gott í dag.. læt fylgja með mynd af bílnum sem ég var að tala um 8)

pukz



» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
[-=Bíladót=-]